facebook-pixel
Skip to content
105 Reykjavík30-827 m2

Katrínartún 4

um eignina

Katrínartún 4 1

Níu hæða bygging fyrir skrifstofur, verslunar- og veitingastarfsemi.

Níu hæða bygging fyrir skrifstofur, verslunar- og veitingastarfsemi. Stærð byggingar: 13.241m².


Laust núna

Laus rými

Hæð: 4

Til leigu vandað 437 m² skrifstofuhúsnæði á 4. hæð við Katrínartún. Laust frá 1. mars 2025

Nánari lýsing: Húsnæðið skiptist upp í opið rými sem er að hluta til eldhús/ kaffistofa með stórri innréttingu, tvær lokaðar stórar skrifstofur með glerveggjum, eitt glerveggjað fundarherbergi, eitt stórt fundaherbergi og eitt samtalsherbergi. Á gólfi er parket. Vandað kerfisloft með innfelldri lýsingu ásamt loftræstibúnaði. Snyrtingar eru í sameign á hæðinni.
Skrifstofuhúsnæði í háum gæðaflokki sem þjónar öllum nútímaþörfum. Í kjallara hússins er stór bílageymsla, búningsklefar og hjólageymsla. Sjón er sögu ríkari. VSK leggst við leigufjárhæðina. 

Myndir

Katrínartún 4
Katrínartún 4
Hæð: Jarðhæð

Til leigu glæsilegt 162 m² skrifstofu-/ verslunarhúsnæði á jarðhæð að meðtalinni hlutdeild í sameign við Katrínartún.
Sjálft rýmið er 140 m². Laust fljótlega. Húsnæðið er staðsett í nærumhverfi við mörg flott fyrirtæki í fjármálageiranum.
 
Gæti hentað vel fyrir glæsilega lögfræðistofu, bókhaldsþjónustu, arkitekta, verslun, hárgreiðslustofu og eða flott kaffihús.

Nánari lýsing: Rýmið skiptist upp í opið sýningar-/ vinnurými, kaffiaðstöðu og Wc. Mikil lofthæð. Mattslípaðar granítflísar á gólfi. Vönduð DELTA - lýsing í loftum. Vélræn loftræsting og rafmagnsopnun á gluggum. Tvö bílastæði í bílageymslu fylgja og aðgengi er að sameiginlegum búningsklefum, sturtum og hjólageymslu í sameign. VSK leggst við leigufjárhæðina.

Myndir

Katrínartún 4
Katrínartún 4
Katrínartún 4
Katrínartún 4
Katrínartún 4
Hæð: -1

Geymslurými með aðkomu frá bílastæðahúsi Höfðatorgi, í kjallara sem geta leigst utan að komandi og þarf ekki að vera bundið annarri leigu í Katrínartúni 4. 24 tíma aðgengi.

Myndir

Katrínartún 4 1
Katrínartún 4 2
Katrínartún 4 3

skoða á korti

fotur