Nefndir

Endurskoðendur
Endurskoðandi Íþöku fasteigna ehf. er Heiðar Þór Karlsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte hf.
Endurskoðunarnefnd
Stjórn skipaði endurskoðunarnefnd félagsins 19. mars 2025. Í nefndinni eru Anna Birgitta Geirfinnsdóttir löggiltur endurskoðandi, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Hildur Árnadóttir, stjórnarmaður og Guðrún Pétursdóttir, stjórnarmaður. Endurskoðunarnefndin skal leitast við að tryggja áreiðanleika ársreikninga og annarra fjármálaupplýsinga ásamt óhæði endurskoðenda félagsins.
Starfskjaranefnd
Stjórn skipaði starfskjaranefnd félagsins 23. Febrúar 2022. Í nefndinni eru stjórnarmennirnir Björn Ingi Victorsson sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Hildur Árnadóttir og Guðrún Pétursdóttir. Starfskjaranefnd undirbýr tillögur að starfskjarastefnu og starfskjörum stjórnarmanna fyrir hluthafafund. Jafnframt undirbýr nefndin samninga um laun og önnur starfskjör við framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn, heyri þeir undir stjórn.
