Sjálfbærnisstefna Íþöku

Leiðarljós
Umhverfisvernd og vitund um sjálfbæra framtíð
Sjálfbær þróun hefur verið skilgreind sem „Þróun sem mætir þörfum samtímans án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til þess að mæta þörfum sínum“.
-Brundtland skýrslan, 1987.
Umhverfisvernd og vitund um sjálfbæra framtíð er leiðarljós sem við viljum fylgja.

Sjálfbærni
ÍÞAKA er fasteignafélag sem rekur og leigir út atvinnuhúsnæði, byggir upp lóðir og þróar lausnir til að mæta húsnæðisþörf fyrirtækja. Fyrirtækið leggur áherslu á skilvirkni og skjóta þjónustu. Gildin okkar eru gæði, traust, fágun og sveigjanleiki.
ÍÞAKA starfar samkvæmt umhverfis- og sjálfbærnistefnu sem byggir á þremur stoðum sjálfbærni: umhverfi, samfélagslegum þáttum og rekstrarlegum þáttum. Það er stefna félagsins að reka fasteignir sínar á ábyrgan, hagkvæman og heilnæman hátt þar sem tekið er mið af áhrifum rekstursins á umhverfi og einstaklinga.
ÍÞAKA leggur áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum fasteigna sinna, bjóða upp á heilnæmt og öruggt húsnæði ásamt því að stuðla að hagkvæmum og sjálfbærum rekstri til lengri tíma litið.
Stefnur
Ábyrg auðlindanýting: Draga úr orku- og vatnsnotkun m.a. með vatnssparandi búnaði, orkusparandi lýsingu og skilvirkum hússtjórnunarkerfum.
Hringrásarhugsun og úrgangsstjórnun: Draga úr úrgangi, auka úrgangsflokkun og bjóða upp á aðstöðu sem styður við hringrásarhagkerfi, t.d. með góðum sorpflokkunarrýmum, snjallri úrgangsskráningu og skýrum merkingum.
Heilnæmt húsnæði: Tryggja góð loftgæði og öruggt innra umhverfi með reglulegri þjónustu loftræsikerfa, réttum hitastýringum, heilnæmu og vönduðu efnisvali og virku viðhaldi.
Vistvæn og heilnæm innkaup: Velja efni, vörur og lausan búnað með góðan endingartíma sem innihalda ekki loftmengandi efni eða önnur efni sem geta haft skaðleg áhrif á heilsu fólks og umhverfi.
Fyrirbyggjandi viðhald: Framkvæma reglulegt viðhald á búnaði og húsnæði og stuðla þannig að langlífi húskerfa, betri orkunýtingu, minni sóun, öruggara húsnæði og minni rekstrarkostnaði.
Góð samskipti við leigutaka: Halda virku sambandi við leigutaka, fylgjast með ánægju þeirra og tryggja aðgang leigutaka að upplýsingum um húsnæðið, stefnu ÍÞÖKU og hlutverki leigutakans í vistvænum rekstri.
Upplýsingagjöf og fræðsla: Kynna stefnu, markmið, verklag og árangur ÍÞÖKU í umhverfismálum og hvetja notendur hússins til að taka virkan þátt í að draga úr umhverfisáhrifum.
Markmið
Markmið ÍÞÖKU í umhverfis- og sjálfbærnimálum eru að:
Innleiða sjálfbærnihugsun/-menningu í fasteignir félagsins og fá sjálfbærnivottun í að lágmarki 50% af fasteignum fyrir lok árs 2028.
Hafa innleitt stjórnkerfi viðhalds fyrir allar fasteignir eigi síðar en í árslok 2027.
Frá og með 2026 verði allar nýjar fasteignir með stafræna vöktun úrgangsmyndunar og sjálfvirkar mælingar á orku- og vatnsnotkun.
ÍÞAKA vinnur náið með leigutökum sínum að þeim áhersluþáttum sem koma fram í stefnunni. Með grænum leigusamningum skuldbinda ÍÞAKA og leigutakar sig til að vinna saman að aukinni sjálfbærni í rekstri fasteigna félagsins.
-Staðfest af stjórn Íþöku ehf., 19. desember 2025
