facebook-pixel
Skip to content

Við styrkjum
ungt íþróttafólk



ithaka sponser

Styrktarsjóður Íþöku


Um styrktarsjóð íþöku

Við trúum á mikilvægi þess að fjárfesta í næstu kynslóð íþróttafólks. Styrktarsjóður Íþöku veitir efnilegu íþróttafólki stuðning sem auðveldar því að halda áfram að æfa, keppa og ná nýjum markmiðum.

Íþaka skrifar undir með FRAM

Íþróttafólk íþöku

Thelma Aðalsteinsdóttir


Thelma Aðalsteinsdóttir

Íþaka er stolt af því að styðja Thelmu Aðalsteinsdóttur, eina efnilegustu fimleikakonu landsins. Thelma hefur sýnt ótrúlegan metnað, nákvæmni og þrautsegju á æfingum og í keppni og er framtíðin svo sannarlega björt hjá henni. Við hjá Íþöku hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi framgöngu Thelmu á mótum bæði heima og erlendis.


Ragnhildur Kristinsdóttir

Íþaka er stolt af því að styðja Ragnhildi Kristinsdóttur, einn efnilegasta og árangursríkasta kylfing landsins. Hún hefur verið hluti af landsliðinu frá 2013, unnið sex einstaklingssigra í háskólagolfi, sett mótsmet hjá GR og slegið lægsta skor í sögu Íslands á stigamótaröð GSÍ. Ragnhildur hefur sýnt einstakan metnað og ástríðu frá unga aldri og heldur áfram að vinna markvisst að því að ná lengra á alþjóðavettvangi. Við hjá Íþöku hlökkum til að fylgjast með næstu skrefum hjá henni.

Ragnhildur Kristinsdóttir
Gauti Guðmundsson


Gauti Guðmundsson

Íþaka er stolt af því að styrkja Gauta Guðmundsson, skíðamann sem hefur skapað sér sterka stöðu innan íþróttarinnar. Gauti hefur keppt af frábærum árangri og er á spennandi vegferð þar sem mörg stór markmið bíða hans.


Sara Mjöll Jóhannsdóttir

Íþaka styður Söru Mjöll Jóhannsdóttur af stolti. Sara hefur stigið hratt upp í röðum efnilegra skíðakvenna og sýnt að hún á fullt erindi á meðal þeirra bestu. Við erum stolt af að taka þátt í vegferð Söru og fylgjumst spennt með komandi tímabilum.

Sara Mjöll Jóhannsdóttir
Íþaka skrifar undir með FRAM


FRAM

Íþaka er stolt af því að styðja FRAM, félag sem hefur sterkan karakter og ríka hefð í íslenskum íþróttum. FRAM hefur unnið fjölda titla í fótbolta og handbolta og byggt upp kraftmikið samfélag í kringum sín lið. Við hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi árangri þeirra.


fotur