05.04.2026
Bætt aðstaða í Árbænum
Reykjavíkurborg og Íþaka fasteignafélag skrifuðu í dag undir nýjan samning varðandi Fylkisselið í Norðlingaholti en húsið hýsir í dag aðstöðu fimleikadeildar, karatedeildar og rafíþróttadeildar Íþróttafélagsins Fylkis.
Samningurinn kveður meðal annars á um stækkun hússins sem mun bæta aðstöðu til muna fyrir iðkendur, þjálfara og starfsfólk. Einnig verður aðstaða fyrir áhorfendur bætt til muna en í dag er sú aðstaða mjög takmörkuð.
„Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir það starf sem er í Fylkisselinu en auk starfs áðurnefndra íþróttagreina er starf Betri Borgara Fylkis í húsinu en þar koma saman yfir 200 manns á besta aldri þrisvar sinnum í viku og stunda líkamsrækt," segir í tilkynningu Fylkis.
Framkvæmdir við stækkunina munu hefjast í sumar og eru áætluð verklok í lok árs 2027.
Sjá meira á MBL.is

