facebook-pixel
Skip to content

30.06.2026

Bjóða listmálurum frítt vinnurými

Listasjóðurinn LÍA opnar rúmgóða vinnustofu fyrir listamenn í Borgartúni í september og opnað hefur verið fyrir umsóknir frá listamönnum sem hafa áhuga á að nýta rýmið.

Í tilkynningu segir að um sé að ræða 230 m² bjart og rúmgott rými sem ætlað er allt að fjórum listmálurum í senn. „Listamennirnir deila aðstöðunni í allt að tvö ár og er hún þeim algjörlega að kostnaðarlausu sem gefur kærkomið tækifæri til að vinna með stærri verk og skapa sér eigið vinnusvæði, á sama tíma og þau njóta samfélags við aðra listamenn í sameiginlegri aðstöðu.“

Heimasíða sjóðsins hefur nú verið opnuð og hafin er leit að fyrstu listamönnunum til að taka rýmið í notkun. Þar sem plássin eru takmörkuð og tækifærið fátítt segjast aðstandendur sjóðsins búast við miklum áhuga.

Sjóðurinn hvetur starfandi listafólk, jafnt nýútskrifað sem lengra komið, til að kynna sér málið og senda inn umsókn en opið er fyrir umsóknir út 15. ágúst. Vinnustofan verður formlega opnuð þann 24. september 2026.


Sjá meira á MBL.is

Katrínartún 4
fotur