22.05.2025
Íþaka stoltur styrktaraðili FRAM
Íþaka skrifaði undir samning við íþróttafélagið FRAM á dögunum og verður stoltur styrktaraðili liðsins næstu þrjú árin. Samstarfið byggir á sameiginlegum áherslum á metnaði, jákvæðu samfélagi og öflugu uppbyggingarstarfi, og við hlökkum til að taka þátt í þeirri vegferð með FRAM.
Merki Íþöku mun birtast á búningum karla og kvenna í meistaraflokki í bæði fótbolta og handbolta. Með samstarfinu viljum við styðja við íþróttafólk sem vinnur markvisst að því að bæta sig á hverjum degi og leggja sitt af mörkum til félagsins og samfélagsins.
Við erum þakklát fyrir traustið og spennt að fylgjast með framgangi liðanna á komandi tímabilum. Fram er fram í allt. 💙
Hægt er að lesa meira um málið á heimasíðu FRAM.

