23.07.2026
Origo-skiltið komið upp á Dalvegi
Flutningum Skyggnis á Dalveg 30A er endanlega lokið en skilti Origo, sem er eitt af þeirra helstu vörumerkjum, má nú sjá utan á nýju höfuðstöðvunum í Kópavogi.
Skyggnir er einnig móðurfélag Syndis, Helix, Aftra, Corus, Datalab og Advise. Fyrra heiti fyrirtækisins var Nýherji en það hafði áður höfuðstöðvar í Borgartúni í Reykjavík.
Ari Daníelsson, forstjóri Skyggnis, ræddi við mbl.is. Hann segir nýja húsnæðið vera stórkostlegt og játar því að vel fari um starfsfólkið þar. Þar starfa 350 manns fyrir félög Skyggnis. Flutningarnir tóku eina viku að hans sögn en húsið var afhent 1. júní.
„Frábært húsnæði á góðum stað“
„Fermetrafjöldinn er minni en nýtingin miklu betri. Húsnæðið hentar okkar núverandi starfsemi miklu, miklu betur en það sem var í Borgartúni. Þar vorum við búin að vera í 26 ár og það hafði verið gott á meðan var en félagið hefur gjörbreyst á síðustu árum.“
Þetta segir Ari um Skyggni og nýju höfuðstöðvarnar sem eru „frábært húsnæði á góðum stað“ að hans sögn.
„Við erum bara hætt að reka eitt félag, í einni samstæðu, sem hét Nýherji í gamla daga og varð svo Origio og var á markaði. Nú rekum við Skyggni eignarhaldsfélag sem á eignarhluti í 13 rekstrarfélögum og sjö þeirra eru í þessu húsnæði með okkur.“
„Þetta er allt öðruvísi starfsemi en áður, mjög dínamísk og mikil breyting. Félög eru ýmist að stækka eða minnka. Stækka þegar við erum að ráða fólk og þenja okkur út eða minnka þegar við erum að spinna út einingum og búa til ný fyrirtæki. Þannig að sveigjanleikinn er meiri en aðallega er húsnæðið nútímalegt, gott, bjart og með alvöru loftgæði og hljóðgæði; með allt sem nútímaskrifstofa þarf á að halda,“ segir forstjórinn.
Verður einhver söknuður af gamla staðnum?
„Jájá, það var frábært að vera í Borgartúni. Ég vann þar ekki í nema tvö ár en sumir hafa verið þar í aldarfjórðung. Það er frábært útsýni og góður leigusali og gott húsnæði sem slíkt en hentaði ekki okkar starfsemi lengur,“ svarar Ari að lokum
Sjá meira á MBL.is

