facebook-pixel
Skip to content

27.11.2025

Pétur Freyr nýr framkvæmdastjóri Íþöku fasteigna

Pétur Freyr Pétursson er nýr framkvæmdastjóri Íþöku fasteigna ehf. Hann tekur við starfinu af Gunnari Val Gíslasyni sem hefur tilkynnt stjórn félagsins að hann hyggist láta af störfum sem framkvæmdastjóri félagsins í árslok. 

Pétur tekur við starfinu í byrjun næsta árs. Gunnar Valur mun áfram gegna starfi framkvæmdastjóra móðurfélagsins Íþöku ehf. 

Pétur Freyr hefur starfað sem viðskiptastjóri Íþöku frá mars 2023. Fyrir það sat hann í stjórn félagsins. Pétur er með BS-gráðu í viðskiptafræði og viðbót í markaðsfræði frá Costal Carolina & Nicholls State University. 

Sjá meira á MBL.is

Pétur tekur við starfinu í byrjun næsta árs.
fotur