04.06.2026
Skyggnir flytur úr Borgartúni
Skyggnir, móðurfélag Origo, Syndis, Helix, Aftra, Corus, Datalab og Advise, hefur flutt starfsemi félaga sinna úr Borgartúni í nýjar höfuðstöðvar á Dalvegi 30A.
Munu því 350 starfsmenn flytja sig um set á næstu dögum.
„Flutningurinn á Dalveg markar mikilvæg tímamót í sögu okkar fyrirtækja og er stór áfangi í þeim umbreytingum sem við höfum staðið fyrir undanfarin ár. Við viljum bjóða starfsfólki okkar upp á bestu vinnuaðstöðu sem völ er á.“
„Þannig löðum við til okkar framúrskarandi fólk sem er tilbúið að takast á við þær áskoranir og hraða sem fylgja hugbúnaðar- og tæknigeiranum. Starfsumhverfi skiptir miklu máli fyrir starfsanda, menningu, frammistöðu, sveigjanleika og teymisvinnu innan fyrirtækja og á Dalveginum setjum við stefnuna á toppinn með okkar fyrirtæki,“ er haft eftir Ara Daníelssyni, forstjóri Skyggnis, í tilkynningu frá félaginu.
Húsnæðið er í eigu Íþaka og um framkvæmd verksins sá verktakafyrirtækið Eykt. Arkitektar hússins eru ASK Arkitektar og um innanhússhönnun fyrir Skyggni sáu Yrki Arkitektar.
Sjá meira á MBL.is

